Tímapantanir Heilsugæslustöðinni Borgarnesi, s. 432 1430
Forsíða

,

 

Sálfræðiþjónustan Blær ehf

Inga Stefánsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1955. Hún er dóttir hjónanna Stefáns Hallgrímssonar, málara og Eddu Björnsdóttur, húsmóður. Inga er gift Sigurði Ragnarssyni og eiga þau saman fjögur börn. Ömmubörn hennar eru þrjú.

Inga lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina, árið 1975. Hún stundaði nám við Háskóla Íslands 1975 til 1978 í uppeldis og sálfræði. Hún lauk embættisprófi í sálfræði frá háskólanum í Árósum árið 1989 cand. psyk.

Inga stundaði námi í Brautargengi1996–1998, rekstur og markaðssetning lítilla fyrirtækja haldið af Iðntæknistofnun og Reykjavíkurborg. Hún var einnig í þriggja ára námi í Margmiðlunarhönnun á listabraut í Borgarholtsskóla frá 2003 til 2005. Þá hefur Inga tekið þátt í fjölda námskeiða m.a. í fjölskyldumeðferð, sorg og sorgarviðbrögðum, áfallahjalp(CISD), reiðistjórnun(ART), leikmeðferð o.fl.

Starfsferill:

Ýmiss sumarstörf s.s. við Skólagarða Reykjavíkur, vinna í gróðrastöð, garðyrkjustörf á vegum Rvk. Sumarbúðirnar á Vestmannsvatni o.fl.

1972-1973 Sumarvinna við Sumarbúðirnar í Vindáshlíð.

1976-1978 Útideild á vegum Reykjavíkurborgar.

1978-1979 Meðferðarfulltrúi á Meðferðarheimilinu að Kleifarvegi.

1979-1985 Rekstur og stjórn Meðferðarheimilisins að Smáratúni/Torfastöðum.

1989-1992 Sálfræðingur við Vistheimili barna á vegum Félagsmálastofnunar Reykjavíkur.

1991-1998 Sjálfstætt starfandi sálfræðingur við Sálfræðiþjónustna Blæ sf.

1998-2007 Rekstur og stjórn Meðferðarheimilisins að Hvítárbakka.

2008-2009 Skólasálfræðiþjónusta í Borgarbyggð

2007-2009 Sjálfstætt starfandi sálfræðingur í Borgarnesi

2009 Skólasálfræðingur á Snæfellsnesi

Námskeiðahald:

Meðal námskeiða má nefna:

  • 1. Hópeflisnámskeið af ýmsum toga t.d. fyrir nema í KHÍ.
  • 2 . Ýmiss námskeið fyrir Símenntunarmiðstöð Vesturlands og leikskólakennara.
  • 3 . Vinnustaðanámskeið fyrir fjölda vinnustaða
    " Vellíðan á vinnustað"
    "Streitustjórnun"
    "Samtalstækni"
    "Að hlúa að sjálfum sér"
    "Viðbrögð við vá"
  • "Sjálfsstyrkingarnámskeið"
    "Sjálfstraust og samvinna"
    Ofl. ofl. ofl.
  • 4. Stjórnendanámskeið m.a. fyrir Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, Slökkvilið Hafnarfjarðar, Reykjavíkurborg og Hafrannsóknarstofnun.
  • 5 . Fagnámskeið
    Nefna má námskeið í fjölskyldumeðferð fyrir félagsráðgjafa, uppeldisfulltrúa o.fl.
    Sérsniðin námskeið fyrir t.d. starfsmenn á vegum Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Vesturlandi og fyrir leikskólakennara.

 

,

Sálfræðingar
Inga Stefánsdóttir
Sigurður Ragnarsson
Námskeið
Meðferð
Fræðsla
 
Tenglar
netfang
 Sálfræðiþjónustan Blær ehf. Steinahlíð, 311 Borgarnes, s. 893 3260, netfang: blaer@salfradi.is