Tímapantanir Heilsugæslustöinni Borgarnesi, s. 432 1430
Forsíða

,

Sálfræðiþjónustan Blær ehf.

Sigurður Ragnarsson er fæddur á Akranesi árið 1944. Hann er sonur hjónanna Ragnars Sigurðssonar, læknis og Kristrúnar Níelsdóttur, húsmóður. Sigurður er giftur Ingu Stefánsdóttur og eiga þau saman fjögur börn. Fyrir átti Sigurður tvö börn. Afabörn hans eru fimm.

Sigurður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík, árið 1964 og kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1966. Hann lauk embættisprófi í sálfræði frá Oslóarháskóla árið 1974(cand. psyk.).

Hann hefur einnig tekið þátt í fjölda eftirmenntunarnámskeiða bæði hérlendis og erlendis m.a. í fjölskyldumeðferð, kynlífsfræðum, einhverfu, dáleiðslumeðferð, handleiðslu og leikmeðferð.

Starfsferill:

1964-1965 Stundakennsla við Heimavistarskólann að Jaðri.

1965-1966 Stundakennsla við Hagaskóla.

1966-1967 Kennsla við Heimavistarskólann að Jaðri.

1967-1968 Kennsla við Álftamýrarskóla

1974-1978 Sálfræðingur við Barna- og unglingageðdeild við Dalbraut.
1978-1979 Sálfræðingur við Unglingaheimili Ríkisins.

1979-1985 Rekstur og stjórn Meðferðarheimilis að Smáratúni/Torfastöðum.
1985-1986 Sálfræðingur við Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur.
1986-1989 Sálfræðingur við Börnepsykiatrisk Hospital í Risskov.

1989-1991 Sálfræðingur við Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur.

1991-1998 Sjálfstætt starfandi sálfræðingur við Sálfræðiþjónustuna Blæ sf.

1998-2007 Rekstur og stjórn Meðferðarheimilis að Hvítárbakka

2007-2009 Sjálfstætt starfandi sálfræðingur

2008-2009 Skólasálfræðingur í Borgarbyggð

2009 Sérfræðiþjónusta í Sameinuðu sveitafélagi Snæfellinga

Hlutastörf og námskeiðahald:

Ráðgjöf og mat m.a. við eftirtalda aðila:

1. Landakotsspítali - barnadeild
2. Sjúkrahús Akureyrar
3. Barna- og Unglingaskóli Ísafjarðar
4. Skólaskrifstofa Austurlands
5. Útideild Reykjavíkur
6. Kleifarvegsheimili
7. Menntaskólinn við Sund

  • Meðal námskeiða sem Sigurður hefur haldið má nefna:
  • 1. Hópeflisnámskeið af ýmsum toga t.d. fyrir nema í HÍ og KHÍ
  • 2 . Sjálfstyrkingarnámskeið t.d. fyrir hópa atvinnulausra.
  • 3 . Vinnustanámskeið fyrir fjölda vinnustaðaa:
    "Vellíðan á vinnustað"
    "Að verjast streitu"
    "Samtalstækni"
    " Einelti á vinnustað "
    Ofl. ofl. ofl.
  • 4. Stjórnendanámskeið m.a. fyrir stjórnendur Álversins í Straumsvík,
    Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, Slökkvilið Hafnafjarðar, Reykjavíkurborg og Hafrannsóknarstofnun.
  • 5 . Fagnámskeið
    Nefna má námskeið í fjölskyldumeðferð fyrir félagsráðgjafa, uppeldisfulltrúa o.fl.
    Námskeið varðandi umhverfismeðferð fyrir fólk á uppeldisstofnunum o.fl.

 

,

Sálfræðingar
Inga Stefánsdóttir
Sigurður Ragnarsson
Námskeið;
Meðferð
Fræðsla
 
Tenglar
netfang
 Sálfræðiþjónustan Blær ehf. Steinahlíð, 311 Borgarnes, s. 861 3260, netfang: blaer@salfradi.is